Rjúpnaveiði hafin

08.11 2010 - Mánudagur

Í huga margra, einkum karlmanna, markar rjúpnaveiðitímabilið hápunkt ársins - þeir og fjölskyldur þeirra geta ekki hugsað sér jól án rjúpna. Fyrir þá sem hefðina hafa væru jól án rjúpna eins og leikrit án leikara, umgjörðin væri til staðar en án markmiðs. Kannski aðeins ýkt mynd en þó ekki fjarri sanni hafandi rætt við þá sem rjúpuna vilja.

Tímabil rjúpjnaveiðimannsins afmarkast af 6 helgum, föstudagur til og með sunndagur eða samtals 18 dagar, og hófst um fyrri helgi. Sigmar B. Hauksson, formaður félags skotveiðimanna, hefur hvert haust lagt á það mikla áherslu að veiðimenn sýni aðgæslu í hvívetna; fari um landið með virðingu við það, við rjúpnastofninn - og veiði af svo sem skynsemin segir - og sýni aðgæslu því þó fjöll/hálendi líti sakleysislega útum bílgluggann sýna náttúruöflin enga miskunn þegar því er að skipta. Aldrei er of varlega farið.

Fréttir berast af því að rjúpnaskytta hafi verið hætt komin í ævintýraleit sinni í Mývatnshrauni um liðna helgi. Að sjálfsögðu eru menn misvel að sér um staðhætti og landið miserfitt yfirferðar, Mývatnshraun mun teljast til staða þar sem getur verið áhættusamt að fara um. Fór það svo að hinn áhugasami rjúpnaveiðimaður féll niður um hraunsprungu 8 metra, hefði raunar getað fallið enn lengra hefði snjónibba ekki orðið honum til bjargar. Slapp hlutaðeigandi með skrekkinn en þetta minnir okkur á að ánægjan getur snúist upp í andhverfu sína sýni menn ekki aðgæslu og/eða fari um land sem þeim er framandi.

Rjúpur munu menn eftir sem áður sækja og samkvæmt fyrstu fréttum af veiðiferðum vopnfirðinga hafa veiðar farið vel af stað og vonandi hafa menn orð formanns skotveiðimanna í huga, að veiða samkvæmt þörf og láta þar við sitja enda sölubann á rjúpu - og ber að virða það. Megi svo menn og konur sem til rjúpna ganga njóta útiverunnar, nálægðar við náttúruna, og koma heil heim - njóta matarins og samvista við ástvini um komandi jólahátíð.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir