Dagar myrkurs á Vopnafirði

10.11 2010 - Miðvikudagur

Dagana 04.-14. nóvember standa yfir Dagar myrkurs á Austurlandi. Eins og ávallt hefur verið taka vopnfirðingar þátt í viðburðinum, annars vegar í þéttbýlinu, hins vegar í minjasafninu Bustarfelli.

Einhverjum kann að þykja það fullmikið að vera með tvo viðburði í sveitarfélaginu tengda dögum myrkurs en svona er því nú varið engu að síður að þessu sinni og verið sl. ár. Á hinn bóginn er vert að ræða samvinnu hér að lútandi auk t. a. m. jólaballs, sem hefur verið til umræðu.

Sú dagskrá sem býðst er annars vegar í félagsheimilinu Miklagarði annað kvöld, fimmtudaginn 11., kl. 20:00 þar sem nemendur 7. bekkjar - þátttakendur í stóru upplestrarkeppninni - munu lesa valdar draugasögur og ekki fyrir hvern sem er að hlýða á þær! Auk þess mun Stephen Yates leika á píanó fyrir upplestur og í hléi - gegn vægu gjaldi býðst gestum kakó og kleinur.

Á laugardag, 13. nóv., er komið að minjasafninu að standa að sinni dagskrá þar sem m. a. er boðið uppá stofutónleika með Grétu Rún Snorradóttur sellóleikara og Unni Söru Eldjárn söngkonu. Gamanleik í "Sparðinu", leiklestur ljóða eftir Erlu skáldkonu með þátttöku ungmenna. Súpa, brauð, kaffi, kakó, djús og meðlæti í boði fyrir 1.300 krónur, 13 ára yngri komast inn án endurgjalds.

Nú er um að gera að hafa sig uppúr sófanum og koma sér í menninguna, á fimmtudagskvöld í Miklagarð og á laugardag inní Bustarfell.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir