Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs sinnir félagslegri ráðgjöf fyrir íbúa Vopnafjarðar. Hlín Stefánsdóttir, félagsráðgjafi mun sinna þessari þjónustu frá og með nóvembermánuði 2010. Er hún hér með boðin velkomin til starfa á Vopnafirði sem og á Héraði.
Gert er ráð fyrir að Hlín muni koma á Vopnafjörð einu sinni í mánuði og sinna viðtölum og úttektum vegna heimaþjónustu svo eitthvað sé nefnt. Hlín mun einnig sitja nemendaverndarráðsfundi í Vopnafjarðarskóla. Viðvera félagsráðgjafa verður yfirleitt fyrsta þriðjudag í mánuði en slíkar dagsetningar geta þó breyst og verður viðveran auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins, næsta viðvera verður þriðjudaginn 16. nóvember.
Óski einstaklingar eftir viðtali við félagsráðgjafa er best að hafa samband við Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs í síma 4 700 705 eða á við Hlín á netfangið hlin@egilsstadir.is. Starfsfólk skrifstofu Vopnafjarðarhrepps getur einnig veitt ýmsar upplýsingar.
Félagsmálastjóri Fljótsdalshéraðs er Guðrún Frímannsdóttir.