Ljúf stemning á Dögum myrkurs í Miklagarði

12.11 2010 - Föstudagur

Boðið var uppá lestur íslenskra draugasagna í Miklagarði í gærkvöldi, á Dögum myrkurs, og kom í hlut nemenda í 7. bekk grunnskólans að annast lesturinn að þessu sinni.

Þó tíminn væri naumt skammtaður tók Ása Sigurðardóttir, íslenskukennari krakkanna, vel í málaleitan menningarfulltrúans um aðkomu nemendanna ungu. Þótti Ásu fara vel á að einmitt 7undi bekkurinn annaðist lesturinn þar eð síðar í vetur taka þau þátt í upplestrarkeppninni - menningarkvöldið væri fyrirtaksæfing fyrir þá keppni.

Að vanda lögðu ungmennin sig fram um að standa sig, misjöfn eins og þau eru frá hendi skaparans, og var sérlega ánægjulegt að hlýða á framsögn þeirra. Magnús Már hélt utan um viðburðinn, opnaði kvöldið og kom öðru hverju við sögu en umfram allt voru það upplesararnir sem kvöldið áttu ásamt frábærum Stephen Yates, sem lék á píanóið í upphafi kvölds og í hléi. Lék Stephen ýmis íslensk lög og gerði einkar vel. Boðið var uppá kakó með rjóma að hætti Dagnýjar skólamatráðs ásamt myndarlegum kleinum - og rann allt saman vel ofan í gesti og þátttakendurna ungu.

Dagar myrkurs er skemmtileg hugmynd, viðburðinn má útfæra með ýmiskonar hætti. Þó myndirnar beri það ekki með sér var salurinn rökkvaður og kertaljósið látið duga lengstum. Á laugardag er komið að minjasafninu á Bustarfelli að standa fyrir menningarvöku í tengslum við Daga myrkurs en hver veit nema að ári hafi náðst samkomulag um að vinna þetta saman - sem og jólaball. Væri þá hægt að sjá fyrir sér myrkrardaga í Miklagarði eða Kaupvangi, jólaball í Staðarholti og öfugt árið eftir.

Hér fara myndir frá viðburðinum með m. a. myndum af hetjum kvöldsins.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir