Vetrarhamur er yfir Íslandi þessa dagana. Eftir rysjótta tíð rann upp bjartur og fagur sunnudagurinn, slíkum dögum tekur maður fagnandi í landi þar sem allra veðra er von.
Heimildarmaður var á rölti með myndavélina uppúr hádegi gærdagsins og tók nokkrar myndir í þéttbýlinu og skammt utan þess. Fegurðin er engu minni að vetri en sumri þegar vel viðrar þó snjór hylji land að nokkru. Á hinn bóginn verður það aldrei ofsagt að mikill munur getur verið á veðri á lág- og hálendi og rétt að kanna veðurútliti áður en lagt er í hann um hálendisvegi landsins - mun björgunarsveitin hafa fengið útkall sl. laugardag þar eð bíll sat fastur á Vopnafjarðarheiði.