Dagur íslenskrar tungu

16.11 2010 - Þriðjudagur

Í dag, 16. nóvember, er dagur íslenskrar tungu. Að því tilefni munu eldri nemendur Vopnafjarðarskóla lesa fyrir þá yngri auk þess sem 7. bekkur heldur yfir götuna og les fyrir leikskólabörn.

Raunar munu krakkarnir lesa fyrir hvert annað, þ. e. a. s. elstu fara í yngri bekkina og lesa. 7. bekkur fer í leikskólann og les fyrir litlu krakkana - og þá mun Hafþór segja miðstiginu Pálmasögur og aðrar sögur. Má segja að nemendur 7. bekkjar hafi tekið forskot á sæluna með upplestri sínum á Dögum myrkurs sl. fimmtudagskvöld en þar lásu þau texta á vönduðu íslensku máli. Yngri nemendur fylgdu þeim síðan eftir á laugardeginum þegar komið var að minjasafninu á Bustarfelli að standa að sambærilegum viðburði.

Stóra upplestrarkeppnin fer nú af stað í 15. sinn og hefst formlega á degi íslenskrar tungu, eldri börnin koma í bekki yngri barna og lesa upp sögur og ljóð, sbr. að ofan. Það kemur ávallt í hlut nemenda 7. bekkjar að taka þátt í upplestrarkeppninni.

Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands, haustið 1995, að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu. Í framhaldi af því hefur menntamálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgað þennan dag rækt við það. Með því móti beinist athygli þjóðarinnar að stöðu tungunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund og alla menningu.

Dagur íslenskrar tungu var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996. Fjölmargir aðilar lögðu hönd á plóg og efndu til viðburða af þessu tilefni. Má þar nefna fjölmiðla, skóla, stofnanir og félög. Menntamálaráðuneytið hélt hátíðarsamkomu og veitti þar í fyrsta sinn Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskunnar. Dagur íslenskrar tungu hefur síðan verið haldinn hátíðlegur með svipuðu sniði og sífellt fleiri aðilar taka virkan þátt í honum með ýmsu móti.

Íslendingar hafa verið hvattir til að draga íslenska fánann að húni á degi íslenskrar tungu.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir