Morgunblaðið greinir frá því í dag á vefsíðu sinni, www.mbl.is, að Ólafur Ármannsson, fyrir hönd þeirra er stóðu að undirskriftarsöfnun á Vopnafirði vegna hótunar um lokun Sundabúðar, komi til Reykjavíkur í dag. Þar verði heilbrigðisráðherra afhentur listinn með nöfnum 400 íbúa auk þess sem Ólafur ásamt Unu B. Jónsdóttur, brottfluttum vopnfirðingi, mun hitta þingmenn kjördæmisins og formann fjárlaganefndar að tali.
Í frétt Morgunblaðsins, www.mbl.is, segir m. a.:
Undirskriftarlisti með nöfnum um 400 Vopnfirðinga þar sem lokun legudeildar fyrir aldraða í Sundabúð á Vopnafirði er mótmælt verður afhentur í dag. Ólafur Ármannsson, einn þeirra sem stóð að söfnun undirskriftanna, segir að forgangsraða verði upp á nýtt. „Við erum endanlega komin á rassgatið ef við getum ekki hugsað um þetta fólk. Þetta gengur ekki. Við verðum að finna aurinn annars staðar,“ segir hann.
Ólafur ekur í dag 143 km leið til Egilsstaða og tekur hádegisvélina frá Egilsstöðum til Reykjavíkur þar sem hann slæst í för með Unu B. Jónsdóttur, Vopnfirðingi sem býr í Reykjavík. Þau munu hitta heilbrigðisráðherra, formann fjárlaganefndar og þingmenn Norðausturkjördæmis í Alþingishúsinu kl. 15:30 og afhenda þeim listann.
Verja deginum saman í leiguíbúð, ofan legudeildar
Afi og ömmusystir Unu liggja á legudeild Sundabúðar og amma hennar býr í þjónustuíbúð á efri hæð þar sem eru leiguíbúðir fyrir eldri borgara.
„Afi minn verður 94 ára í desember. Á eftir ömmusystur minni er hann næstelsti Vopnfirðingurinn. Bæði dvelja þau á legudeild Sundabúðar á Vopnafirði sem nú stendur til að loka. Amma mín býr í dvalaríbúð í Sundabúð og afi er þar lungann úr deginum, hann sefur niðri á legudeildinni en annars verja þau amma deginum saman uppi í litlu íbúðinni sem amma er nú skráð fyrir eftir að afi fluttist niður. Sigga ömmusystir mín, elsti Vopnfirðingurinn, kemur oft í heimsókn enda ekki um langan veg að fara. Þetta litla samfélag í Sundabúð er þeirra skjól, fasti punkturinn í tilverunni fyrir utan heimsóknir frá vinum og ættingjum,“ segir í pistlinum sem birtist á www.vopnafjordur.is.
„Í okkar huga verður þetta aldrei gert“
Um 400 Vopnfirðingar, 16 ára og eldri, rituðu nafn sitt á listann. Alls búa 683 á Vopnafirði, þar af 544 sem eru 16 ára eða eldri.
Ólafur segir Vopnfirðinga afar ósátta við þá fyrirætlan stjórnar Heilbrigðisstofnunar Austurlands að loka legudeildinni. „Í okkar huga verður aldrei gert,“ segir Ólafur. Kynntar hafi verið fyrirætlanir um að sveitarfélögin taki við þjónustu við aldraða árið 2012. „Þannig að þessu verður aldrei lokað. Það verða bara fundnar aðrar leiðir,“ segir hann.
Ólafur telur að þingmenn og ráðherrar vilji að Sundabúð verði áfram starfrækt. Ólafur tekur fram að Vopnfirðingar, Húsvíkingar og fleiri íbúar landsbyggðarinnar séu að berjast fyrir sama málsstað. Stjórnvöld verði að forgangsraða upp á nýtt.
Fá Ólafur og Una sendar bestu kveðjur með von um að baráttan muni skila okkur sanngjarnri niðurstöðu og þeirri ólgu sem ummæli ráðamanna HSA hafa valdið hér heyri brátt sögunni til.