Skólakrakkar heimsækja HB Granda

17.11 2010 - Miðvikudagur

Heimildarmaður síðunnar sótti HB Granda heim um mitt sumar, þann 14. júlí nánar tiltekið, og fékk tækifæri til að kynna sér vinnsluna undir leiðsögn Magnúsar Þórs Róbertssonar. Var sá hluti starfseminnar skoðaður er í daglegu tali kallast Milljón, þ. e. frystihluti starfseminnar. Nú var komið að skólakrökkum að fá tækifæri til að kynna sér fyrirtækið HB Granda á Vopnafirði.

Hópur nemenda í 8., 9. og 10. bekk völdu sér valfag á haustönn sem tekur til véla frá ýmsum hliðum og er undir handarjaðri Bíla og véla. Í gær, þriðjudaginn 16. nóvember, sótti hópurinn HB Granda heim og naut leiðsagnar Gísla Sigmarssonar. Fór Gísli með áhugasama nemendurna um Milljón og fiskimjölsverksmiðjuna, kynnti fyrir þeim starfsemina alla og lýsti því sem fyrir augu bar. Bjarki Björgólfsson var á staðnum og fylgdi hópnum eftir og mun myndmálið segja sögu heimsóknar að þessu sinni en að örðu leyti er vísað til fyrrgreindrar heimsóknar, sem lýst var af nokkurri nákvæmni hér á síðunni.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir