Að vanda var stemningin góð þegar minjasafnið á Bustarfelli stóð að Dögum myrkurs sl. laugardag en segja má að umhverfið sé skapað fyrir viðburð sem þennan.
Dagskráin er ávallt hin vandaðasta og til að tryggja að sem flestir komist að var boðið uppá tvær uppákomur. Svo sem myndir Jóseps Jobba Jósepssonar bera með sér var vel mætt en eins og ávallt er sjón sögu ríkari.