Landsliðsþjálfarinn, Ólafur Jóhannesson, tók boði stjórnar Ungmennafélagsins Einherja, um að koma á gamlar slóðir og taka þátt í Einherjadeginum, sem haldinn var í gær. Mætti Ólafur á allar æfingar dagsins áður en kom að viðburðinum í Miklagarði um kvöldið.
Klukkan 18:30 var blásið til viðburðarins í félagsheimilinu þangað sem öllum Einherjakrökkum var stefnt, viðurkenningar veittar fyrir framlag hvers eins til félagsins - afhentar af Ólafi landsliðsþjálfara og vini Vopnafjarðar. Að þessu loknu voru frambornar pítsur að hætti Hótels Tanga og þurfti ekki að hvetja nokkurn sem í salnum var að taka matar síns, krakkarnir voru alveg einfær um þá ákvörðun sjálf! Á níunda tímanum lauk ánægjulegum Einherjadegi.
Meðfylgjandi eru myndir Bjarka Björgólfssonar frá Einherjahófinu í Miklagarði.