Ferða- og menningarfulltrúar í Eyþingi

21.11 2010 - Sunnudagur

Austfirskir ferða- og menningarmálafulltrúar endurguldu kollegum sínum úr Eyþingi heimsóknina og héldu norður sl. fimmtudag - og dvöldu nyrðra þann dag og næsta. Hafði Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, menningarfulltrúi Eyþings, veg og vanda að heimsókninni líkt og okkar kona, Signý Ormarsdóttir, hafði er norðanmenn heimsóttu Austurland fyrr á árinu.

Hópurinn austfirski, ferða- og menningarfulltrúar sveitarfélaganna og forstöðumenn stofnana, var minni en áætlað var, það gerist alltaf í tilfellum sem þessum að einhverjir hellist úr lestinni en að þessu sinni var hluti hópsins á leið til Rovanemi í Finnlandi til að heilsa uppá jólasveininn eina. Þau sex sem norður fóru áttu eftir að njóta hverrar stundar en saman fór frábært skipulag menningarfulltrúans norðlenska og sérlega áhugaverðar heimsóknir um fjórðunginn - með Síldarminjasafnið sem hápunkt ferðarinnar.

Ekið var að morgni fimmtudagsins 18. við sannast sagna varhugaverðar aðstæður, hálkan var átakanleg á hálendinu og á Vopnafjarðarheiði hafði gulltönn ýtumannsins ekki náð niður og krapinn sem á veginum sat bílum og bílstjórum hættulegur. Naut ferða- og menningarmálafulltrúi Vopnafjarðar, sá sem þetta ritar, fulltingis Ingibjörns Sigurjónssonar og þakkaði fyrir að hafa slíkan öndvegismann undir stýri. Við gatnamót heiðarinnar og þjóðvegar 1 hittust málsaðilar - ferðalagið norður var hafið.

Eftir erfitt ferðalag var komið að Narfastöðum hvar húsráðendur, Unnsteinn Ingason og Rósa Ösp Ásgeirsdóttir, tóku á móti hópnum; Sif Jóhannesdóttur, þjóðfræðingi, og R. Jónu Ingimarsdóttur, áðurnefndum skipuleggjanda og menningarfulltrúa. Auk glæsilegs hlaðborðs gerðu þau Unnsteinn og Sif grein fyrir þeirri stórmerku vinnu sem á sér stað í sveitarfélaginu þeirra - greint var frá Fornleifaskóla barnanna, Hinu þingeyska fornleifafélagi og Þingeyska sagnagarðinum. Samstarfið við litla Laugaskóla er nokkuð sem allir, sem á annað borð vilja samstarf við skólanna, æskja og til mikillar fyrirmyndar. Áhugi nemanda hefur sýnt sig vera ósvikinn og þau lært meira af verkefnavinnu sinni en þau nokkru sinni læra af fræðabókum. Fyrirlestur beggja sérlega áhugaverður og þeim þakkað vel fyrir innleggið.

65 kílómetraleiðin til Akureyrar gekk vel, aðstæður betri en austan Narfastaða, haldið var beina leið að menningarhúsinu Hofi. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, framkvæmdastýra Hofs, tók á móti gestunum og leiddi þá í gegnum risavaxna bygginguna og upplýsti þá um það sem fyrir augu bar. Og víst er þar margt sem áhugavert fyrir gestinn að skoða, menningarhúsið mun þegar hafa sannað gildi sitt og Ingibjörg er að vinna gott starf í þágu þess og menningar Norðurlands um leið.

Menningarhúsið Berg á Dalvík er þeim stað ekki síður mikilvægt en Hof Akureyri - og nágrenni staðanna - en þetta glæsilega hús skyldi vera gjöf sparisjóðsins til Dalvíkurbyggðar. Efnahagshrun breytti stöðu mála en þó mun bróðurparturinn hafa komið frá sparisjóðnum og nú geta íbúar glaðst yfir stórglæsilegri byggingu í hjarta bæjarins. Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstýra, greindi frá sögu hússins og ásamt Hildi Ösp Gylfadóttur, fræðslu- og menningarfulltrúa, fór yfir menningarstarfið í sveitarfélaginu. Var síðan boðið uppá kaffi og tertu í fallegri kaffiteríu Bergs, sem einnig hýsir bókasafn sveitarfélagsins - þannig er tryggt að líf er ávallt í húsinu.

Akstur til Fjallabyggðar gekk greiðlega, Ólafsfjarðargöng eru ávallt greiðfær þó hægt sé að finna að því nú um stundir að þau séu einungis einbreið! Mikil tilhlökkun var í hópnum að reyna hið nýja stórglæsilega mannvirki, Héðinsfjarðargöng, og má staðhæfa að enginn var svikinn af þeirri upplifun - hvílík breyting! Var ekki hjá því komist að leiða hugann að Hellisheiðargöngum svo ekki sé talað um göng undir Smjörvatnsheiði ...

Mikil er sú breyting sem orðin er á Siglufirði, eftir mörg erfið, mögur ár hefur uppbygging hafist fyrir nokkru og ásýnd staðarins tekið stórum breytingum til batnaðar. Líkt og Ísafjörður fyrir vestan nýtur Siglufjörður þeirra forréttinda að eiga sér miðbæ, miðsvæði sem fólk leitar til. Rifjið upp þá staði aðra á Íslandi sem teljast til kaupstaða sem miðbæ eiga - byrjið á Austurlandi.

Karítas Skarphéðinsdóttir, menningarfulltrúi Fjallabyggðar, tók á móti hópnum ásamt starfsmanni þjóðlagaseturs sr. Bjarna Þorsteinssonar, Guðrúnu Ingimundardóttur, og kynntu m. a. Norðurþjóðaverkefnið. Ljóst er að þarna fer fram mikið og merkilegt starf, þjóðlagahátíðin er hluti starfseminnar, sem hefur alla möguleika á að vaxa og dafna.

Síðan var Herhúsið svo kallað heimsótt en nafnið kemur frá Hjálpræðishernum, sem þar átti sitt athvarf áður. Sjálfboðaliðar hafa unnið þarna frábært starf við endurbyggingu hússins, sem þjónar sem listamannaskáli með gistiaðstöðu - er slegist um að komast þar að og því eru Siglfirðingar að fara í endurbyggingu annars húss í sama tilgangi. Þetta sýnir þá breytingu sem átt hefur sér stað á þessum góða stað á sl. árum.

Fjöllistakonan Fríða tók því næst á móti hópnum, það þarf nánast lík til að finna ekki til ánægju og barnslegrar gleði með því að líta til Fríðu - sjáið bara myndirnar!

Að morgni föstudagsins var komið að heimsókn í eitt merkasta safni þjóðarinnar, Síldarminjasafninu, annaðist Rósa Húnadóttir kynninguna. Þarna hafa hlutirnir verið unnir til enda, Örlygur listamaður og Siglfirðingur númer eitt, stýrði uppbyggunni af mikilli skarpskyggni og þekkingu. Safnið er þrískipt í þremur húsum og fyrir gestinn eins upplýsandi og slík söfn geta verið. Heimsóknin í Síldarminjasafnið sannarlega hápunktur ferðarinnar og ætti að vera skylda hvers íslendings að sækja heim. Ágætt að núlifandi íslendingar - einkum þeir sem á móti Héðinsfjarðargöngum voru - leiddu hugann að því að þegar best lét komu 40% gjaldeyristekna þjóðarinnar frá Siglufirði.

Að Síldarminjasafnsheimsókn lokinni tók við fundur fulltrúanna allra þar sem málin voru rædd um frekara samstarf aðila í millum - kann fundurinn að marka upphaf vænlegs samstarfs til framtíðar. Að lokum er full ástæða til að þakka fyrir gestrisnina og hina merkilegu upplifun sem norðurförin var okkur austanfólki - þó vissulega hafi sumir meiri tengsl norður en aðrir!

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir