Starfsmenn HB Granda á Vopnafirði komu saman til gleðskapar sl. laugardags og fögnuðu vertíðarlokum - og höfðu fulla ástæðu til þar eð síldarvertíðin var fyrirtækinu einkar hagsæld. Í fyrradag kom fyrsta síldin á nýhafinni vertíð til hafnar, Íslandssíld er það sem til skiptanna er nú en á liðinni vertíð var veitt úr Norsk-íslenska stofninum, sumargotsíld.
Á sama tíma og við fáum jákvæðar fregnir af ástandi loðnunnar, þegar búið að gefa út 200 þúsund tonna heildarkvóta og hlutur HB Granda 27.000 tonn, er síld tekin að berast að landi. Líkt og oft áður njótum við frétta af heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, og fer frétt af henni hér á eftir og birtist í gær:
Síldarvinnsla hófst að nýju í fiskiðjuveri HB Granda á Vopnafirði um kl. 04 í nótt eftir að Ingunn AK hafði komið til hafnar fyrr um nóttina með um 750 tonna afla. Síldin er fersk og af góðri stærð eða rúmlega 300 grömm að jafnaði, að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra.
Ingunn AK var við síldveiðar í Breiðafirði um helgina og fékkst þessi afli í einu kasti. Faxi RE er nú á miðunum en alls kom um 2.800 tonna viðbótarkvóti í hlut HB Granda eftir að sjávarútvegsráðherra ákvað að auka við kvótann. Að sögn Magnúsar dugar þetta magn til þess að halda uppi vinnslu í fiskiðjuverinu í sjö til níu daga.
Að lokinni vinnslu á síldinni verður væntanlega hugað að loðnu fyrir norðan land en samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er talið óhætt að heimila veiðar á 200 þúsund tonnum af loðnu. Svo er fyrirhugað að meta ástand stofnsins að nýju í byrjun næsta árs og vonast menn til að niðurstöður þeirrar rannsóknar leiði til þess að hægt verði að auka ennfrekar við kvótann.
Að undanförnu hefur verið unnið að þrifum og viðhaldi á tækjum og búnaði í fiskiðjuverinu á Vopnafirði. Eftir þá vinnu fékk starfsfólkið í vinnslunni langþráð leyfi, að sögn Magnúsar Róbertssonar, en mikið álag hefur verið á starfsfólkinu undanfarna mánuði.