Í dag var foreldradagur í grunnskólanum, þá gefst kennurum færi á að ræða við foreldra barnanna. Nemendur eiga ekki alveg frí því þau sitja fundinn með kennaranum/kennurunum ásamt foreldrum sínum.
Þó nemendur eigi ekki frí í þeim skilningi að þau mæta í skólann vegna viðtals er dagur sem þessi ætíð vel þeginn og ekki annað að sjá en að krakkarnir nytu verunnar í skólanum án venjubundinna skuldbindinga. Það gerðu þau eldri einnig, ekki var það til að eyðileggja stemninguna, að þeirra sem vildu, beið pastaréttur að hætti hússins ásamt heimabökuðu brauði í alls kyns útgáfum.
Þess má geta að í skólanum var meðal annarra þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson, hingað kominn til að heimsækja Sundabúð og kynna sér starfsemi hennar. Sagði hann að stofnunin yrði varin með ráð og dáð - hljómar það sem ljúf tónlist í eyrum okkar vopnfirðinga.