Rithöfundalestin kemur til Vopnafjarðar

25.11 2010 - Fimmtudagur

Komið er að árlegum menningarviðburði á Vopnafirði, hin s. k. rithöfundalest kemur til bæjarins á morgun, föstudaginn 26. nóvember. Fyrir margan bókaorminn er kvöldstund með rithöfundum ómissandi hluti af aðventu jóla. Menningarkvöldið hefst kl. 20:30 og er í Miklagarði.

Eins og ávallt er vel skipað í sveit þegar blásið er til bókmenntakynningar, að þessu sinni eru höfundarnir 4 sem kynna bækur sínar, þeir eru:

Bragi Ólafsson - Handritið að kvikmynd Arnar Fetherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson. Kristín Steinsdóttir - Ljósa.  Sigrún Pálsdóttir - Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar.  Ævar Örn Jósepsson - Önnur líf. 

Aðgangseyrir 1.000 en eins og svo oft áður eru eldri borgarar í boði Landsbankans - bækurnar verða seldar á staðnum. Að vanda hefur menningarmálafulltrúi tryggt gestum jólakökur og konfekt gestum að kostnaðarlausu gegnum vináttu og góðmennsku fulltrúa Brauðgerðar Kristjáns og Nóa-Síríus. Kaffið er síðan í boði menningarmála sveitarfélagsins.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir