Á morgun, sunnudag 28. nóvember, er fyrsti sunnudagur í aðventu og samkvæmt hefðinni er þann dag tendrað á ljósum jólatrésins við Kaupvang kl. 17:00.
Áður en að atburðinum kemur hafa kvenfélagskonur opnað Kaupvang, frá og með kl. 16:00 bjóða þær uppá kaffi- og/eða súkkulaðisopa og kökur að hætti kvenfélagskvenna - kökubasar að auki. Er sjálfsagt að koma sér tímanlega í Kaupvang, næra kroppinn áður en sálin verður nærð undir ræðu sveitarstjóra.
Utan Kaupvangs hefst viðburðurinn svo sem áður greinir kl. 17:00 með ávarpi sveitarstjóra, tendrun jólaljósa, söngs ungmenna úr kór Vopnafjarðarskóla - og heimsókn jólasveinanna að sjálfsögðu. Eru börn á öllum aldri hvött til að mæta til viðburðarins og gleðjast yfir að innan 4ra vikna er hátíð ljóss og friðar fagnað um heim allan.