Í dag var kosið til stjórnlagaþings á Vopnafirði sem og annars staðar á Íslandi. Kosningaþátttaka var dræm um land allt en kl. 20 höfðu t. a. m. 30% kosningabærra Reykvíkinga kosið en kjörstaðir þar eru opnir til kl. 22:00 í kvöld.
Þetta er mun dræmari kosningaþátttaka en í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin í fyrravetur þegar um 50% kjósenda höfðu kosið á sama tíma. Er sem fólk sýni málefninu lítinn áhuga og/eða það vaxi fólki í augum að velja milli þeirra liðlega 500 sem eru í framboði en hver einstaklingur má velja allt að 25 manns á stjórnlagaþingið.
Ekki er úr vegi að rifja upp til hvers var stofnað, sbr.:
Stjórnlagaþing á, samkvæmt lögum frá Alþingi nr. 90/2010, að koma saman í febrúar 2011 til að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Þingið á að standa í tvo til fjóra mánuði og verður skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum fulltrúa. Þingfulltrúar verða kosnir persónukosningu og er landið eitt kjördæmi við kosninguna. Stjórnlagaþinginu er ætlað að undirbúa frumvarp að endurbættri stjórnarskrá og hafa til hliðsjónar við þá vinnu niðurstöður Þjóðfundar 2010.