Sú var tíðin að vetur ríkti vikum saman á Íslandi en hin síðari ár hefur sem Veturkonungur hafi linað takið og munur á sumri á vetri á tíðum lítill. Sl. daga hefur hann þó sýnt afl mátt sinn og megin, í gær var hann í góðu skapi og bauð uppá hið fegurstu veður þó vissulega hafi bitið í andlit, frostið.
Heimildarmaður rölti um þorpið í í gær og tók nokkrar myndir, misgóðar að vanda, en lætur þær fylgja öðrum til upplýsinga og jafnvel einhverrar ánægju líka.