Þeirrar stundar er ávallt beðið með nokkurri eftirvæntingu, tendrun ljósa jólatrésins, sem HB Grandi h.f. færði vopnfirðingum að gjöf að þessu sinni. Er kærum þökkum komið á framfæri hér með.
Viðburðurinn var hefðbundinn með ávarpi sveitarstjóra með lokaorðunum "Verði ljós" - og eftir smábið varð honum (og öðrum) að ósk sinni. Þá tók við söngur jólalaga, sem að þessu sinni var ungmenna Vopnafjarðarskóla að syngja og stóðu sig með mikilli prýði - sem og Stephen Yates við píanóið. Að lokum var komið að skrýtnu köllunum, jólasveinunum sjálfum, sem heilsuðu börnunum glaðbeittir og fengu mannskapinn til að taka lagið. Nammi var dreift að vanda og var fatan rauða, sem barmafull var í upphafi, fljót að tæmast - en haft er fyrir satt að allir hafi fengið sem það áttu skilið :-)
Áður en kom að tendrun ljósa jólatrésins myndarlega buðu kvenfélagskonur í Lindinni til veislu, kaffi- og kakó auk Hnallþóra að hætti kvenfélagskvenna, alveg magnað kaffihús það. Heimildarmaður ásamt betri helmingi sannreyndi gæðin og fór ekki svikinn af vettvangi, þvert á móti glaður og mettur.
