Nú líður að þeirri stundu að Safnstöð Vopnafjarðar taki til starfa og vopnfirðingar taka að flokka heimilissorp sitt. Eins og áður hefur ritað hér á þessum stað er tími nýrrar hugsunar upprunninn - raunar var skrifað að tíma letingjans væri á enda!
Innan skamms fer í hvert hús í sveitarfélaginu upplýsingabæklingur, sem Teikn á lofti hefur unnið, en í samstarfi við SAGA-PLAST ehf. á Akureyri hefur Vopnafjarðarhreppur unnið að gerð móttökustaðar í þorpinu, Safnstöð Vopnafjarðar. Er markmiðið að taka á móti flokkuðum efnum, sem falla til frá heimilum og fyrirtækjum í sveitarfélaginu - og er staðsett á kunnulegum stað, í gamla áhaldahúsinu að Búðaröxl.
Bæklingurinn er hinn vandaðasti, prentaður af Hafþóri Róbertssyni og er þess vænst að fólk geymi hann sem lengst enda upplýsingagildi bæklingsins mikið. Við því er að búast að fólki þyki málin heldur flóknari eftir að flokkunin er komin á en það er með þessi mál eins og öll önnur að þegar hefð hefur skapast er eins og hún hafi alla tíð verið í heiðri höfð.
Meðfylgjandi er bæklingurinn í pdf-formi.
Sorpbæklingur - 261110.pdf