Skömmu fyrir mánaðarmótin nóvember-desember lauk síldveiðum HB Granda, lauk þar með farsælli vertíð. Lengstum var Norsk-íslensk síld sem veidd var en 4.500 tonn komu á land af Íslandssíld, sumargotsíld.
Aðspurður sagði Magnús Þór Róbertsson að vertíðin hafi verið þeim heilladrjúg, enn eimir eftir af vertíðinni því í dag er verið að fara í skip 12-1300 tonn af frystri afurð, síld og makríl. Nú er horft til loðnuvertíðar. Ingunn og Faxi eru á miðunum í loðnuleit útaf Vestfjörðum – kannski kemur eitthvað í hús fyrir áramót og væri ágætt ef það gerðist svo hægt væri að reyna hús og veiðifæri. Magnús segir starfsmenn tilbúna hér. Hlutur HB Granda af 200 þús. heildarkvóta eru 27 þús. tonn svo eftir nokkru er að slægjast.
Aflokið er heilmikilli veislu þar sem starfsmönnum og mökum var boðið en jólahlaðborð, hangikjöt og með því, er einhvern tímann á tímabilinu 16. til 18. des. en það er ætíð ákaflega ánægjuleg stund.
Af heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, dags. 26. nóvember sl., má lesa:
Síldveiðum skipa HB Granda er lokið á þessu ári en Lundey NS er nú á leiðinni til Vopnafjarðar með síðasta farm vertíðarinnar, um 800 tonna afla. Í morgun var lokið við að landa úr Faxa RE á Vopnafirði en aflinn í síðustu veiðiferð skipsins á síldveiðunum var um 900 tonn.
Að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra HB Granda á Vopnafirði, er von á Lundey til hafnar upp úr miðnættinu og ef allt gengur að óskum verður hægt að ljúka vinnslu á afla skipsins nk. sunnudagskvöld. Alls máttu skip HB Granda veiða um 4.800 tonn af íslenskri sumargotssíld á vertíðinni og eftirstöðvar kvótans eru nú um 300 tonn sem færð verða yfir á næsta ár.
Albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa, segir að veiðarnar hafi gengið vel í síðustu veiðiferðinni en umrædd 900 tonn fengust í tveimur köstum skammt frá landi beint út af kirkjunni í Stykkishólmi.
,,Síldin hefur aðallega verið að veiðast í sundunum, s.s. í Kiðeyjarsundi, en þar var
ekkert að sjá að þessu sinni. Hins vegar töluvert magn af síld þar sem við köstuðum. Aðstæður þarna eru mjög erfiðar á inn- og útfalli og straumurinn hvergi meiri. Í fyrra kastinu var straumhraðinn 1,8 míla á klukkustund en síðan köstuðum við aftur á liggjandanum og þá var mun auðveldara að athafna sig,“ segir Albert Sveinsson en Faxi kom til Vopnafjarðar með aflann sl. miðvikudagsmorgun.
Nú þegar síldveiðum er lokið horfa menn til loðnuveiða en enn er óvíst hvenær skip HB Granda fara til loðnuleitar, sbr. ofan.