N. k. sunnudag, hinn 05. desember - annan sunnudag í aðventu - verður aðventuhátíð í Vopnafjarðarkirkju og hefst hátíðin kl. 17:00. Fyrrum samgönguráðherra, Kristján L. Möller, mun flytja þar hugverkju en KLM er ákaflega áheyrilegur og maður með gott hjartalag.
Dagskráin er fjölbreytt en auk Kristjáns munu börn úr 10-12 ára starfinu og fermingarbörn verða með helgileik, grunnskólabörn og barnakórinn syngja. Börn úr tónlistarskólanum flytja tónlistaratriði. 
Unglingar í æskulýðsfélaginu bjóða upp á aðventukaffi í safnaðarheimilinu.
Er sjálfsagt að hvetja fólk til að mæta og eiga saman hátíðlega stund í kirkjunni í ljósi aðventunnar.
Ungmenni úr æskulýðsstarfi kirkjunnar eru þessi kvöldin á rölti um bæinn þar sem jólakort eru seld, gefin út af sóknunum í Hofsprestakalli til styrktar æskulýðsstarfi. Fer vel á að senda ættingjum og vinum kveðjur með myndum sem minna á heimabyggð.