Fundað um sorphirðu

07.12 2010 - Þriðjudagur

Í kvöld kl. 20:00 heldur sveitarfélagið borgarafund um breytt fyrirkomulag sorphirðu en íbúar sveitarfélagsins fengu inn um bréfalúguna bækling hér að lútandi í gær. Fundað verður í félagsheimilinu.

Málið var til kynningar á síðasta fundi sveitarstjórnar, þann 02. desember sl., og þar segir m. a.:

Gerð var grein fyrir því að búið er að prenta kynningabækling vegna breytts fyrirkomulags í sorphirðu. Bæklingnum verður dreift á öll heimili í sveitarfélaginu öðru hvoru megin við helgi. Sérstakur kynningarfundur verður um málið 7. des. næstkomandi, kl. 20.00 í félagsheimilinu Miklagarði, þar sem íbúum sveitarfélagsins verður kynnt hvernig best er að standa að þessu nýja fyrirkomulagi.  

Kallað er eftir góðri samvinnu við íbúa og fyrirtæki sveitarfélagsins í þessum efnum. Aðgerð þessi er nauðsynleg til þess að minnka til muna það sorp sem til urðunar fer. Á fundinn mætir meðal annarra fulltrúi Saga Plast á Akureyri en fyrirtækið er samstarfsaðili Vopnafjarðarhrepps í þessu brýna verkefni.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir