Loðna tekin að berast

09.12 2010 - Fimmtudagur

Frá því var greint 02. desember að loðnuvertíð væri hafin. Á mánudag var HB Grandi kominn með 3 skip á haf út til loðnuleitar en kvóti fyrirtækisins er 27 þúsund tonn af þeim 200 sem sjávartútvegsráðherra gaf út fyrir skömmu. Í fyrrinótt kom Ingunn AK með um 750 tonn til Vopnafjarðar, loðnuvertíð var hafin.

Heimasíða HB Granda, www.hbgrandi.is,  hefur löngum reynst vel þegar kemur að umfjöllun um athafnasemi fyrirtækisins og ekki að undra, milliliðalaust greinir hún frá því sem í gangi er. Þar segir í gær:

Ingunn AK kom til Vopnafjarðar í nótt með um 750 tonna loðnufarm. Að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra hjá HB Granda, er verið að frysta stærstu loðnuna úr aflanum og er reiknað með að því verki ljúki seint í kvöld eða í nótt.

Loðnuvertíðin hefur farið rólega af stað enda hafa aðeins þrjú skip verið við veiðar síðustu dagana. Faxi RE er nú á leiðinni til Vopnafjarðar með um 260 tonna afla og er von á skipinu til hafnar um kl. 20 í kvöld. Albert Sveinsson skipstjóri segir að á ýmsu hafi gengið í veiðiferðinni.

,,Þetta hefur verið erfitt. Loðnan hefur staðið djúpt og verið mjög dreifð, jafnvel á nóttunni. Straumar og veður hafa einnig torveldað veiðarnar. Við höfum einnig lent í því að rífa nótina og þar af einu sinni mjög illa. Áhöfnin leysti það mál yfir nótt í brunagaddi og snjókomu,“ segir Albert en að hans sögn eru aðstæður á veiðisvæðinu á Kolbeinseyjarhryggnum með þeim hætti að mun betra væri að veiða loðnuna með flottrolli. Slíkar veiðar eru hins vegar ekki heimilaðar nema á svæði sem er austan við Langanes.

,,Það vantar ekki að það lóðar víða á loðnu en hún kemur helst ekki upp fyrir 60 faðma dýpi og oftar en ekki hefur aflinn verið lítill þótt lóðningarnar hafi gefið góð fyrirheit,“ segir Albert Sveinsson.

Svo sem lesa má er ekki tekið út með sældinni að ná í aflann, í brunagaddi útá opnu hafi eru menn að berjast við að bera björg í bú og gefa hvergi eftir. Íslenskir sjómenn eru karlmenni Íslands og vonandi verður vertíðin, löng eða stutt, þeim heilladrjúg í hvívetna.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir