Síðastliðinn þriðjudag stóð Vopnafjarðarhreppur fyrir borgarafundi um sorphirðumál en miklar breytingar eru í vændum í meðhöndlum sorps, bæði heimilis og fyrirtækja. Líkt og fram kom í máli Gunnars Garðarssonar, frá Saga-Plast á Akureyri, eru kröfurnar ekki tilkomnar vegna mannvonsku starfsmanna sveitarfélagsins heldur á sér stað vakning um heim allan varðandi sorp og meðhöndlun þess.
Þorsteinn sveitarstjóri setti fundinn, bauð fundarmenn velkomna og þá einkum gesti fundarins, Halldór Jóhannsson frá Teikn á lofti, hönnuð bæklings þess er fór í hvert hús sveitarfélagsins daginn áður, og Gunnar Garðarsson, framkvæmdastjóra Saga-Plast, samstarfsaðila Vopnafjarðarhrepps í verkefninu.
Halldór gerði nánar grein fyrir innihaldi bæklingsins, gaf frekari útskýringar á því sem í honum er. Á hinn bóginn er bæklingurinn einstaklega vel framsettur en mikilvægt er að fólk geymi hann á vísum stað, a. m. k. á meðan þörf er á að glugga í hann.
Gunnar hefur verið í bransanum lengi og líklega eru þeir fáir hérlendis sem betur eru að sér í flokkun og endurvinnslu sorps. Framsaga Gunnars var einkar upplýsandi og bætti miklu við það sem í bæklingnum er, merkilegt nokk eins og vel hann er framsettur. Gerði Gunnar að umtalsefni hinar ýmsu goðsagnir sem í gangi eru og hvers vegna sú leið sem valin var hér var einmitt álitin sú besta. Hvatti hann fólk til að kynna sér málin vel; fara hægt af stað en smám saman tileinka sér þann nýja hugsanahátt sem í flokkuninni felst. Að við hugsum áður en við hendum!
Mæting var með ágætum og fyrirspurnir sýndu að fólk hefur áhuga á málefninu þó okkur ói ögn við því verkefni sem framundan er enda ósköp þægilegt að safna öllu í einn poka og eftirláta öðrum erfiðið við að koma sorpinu þangað sem því er ætlað að vera.