Jólaföndur foreldrafélagsins

09.12 2010 - Fimmtudagur

Hið árlega jólaföndur foreldrafélag grunnskólans var haldið sl. þriðjudag. Að vanda var mætingin með ágætum og lögðu allir sig fram um að búa til eitthvað fallegt fyrir jólin, nemendur jafnt sem foreldrar.

Fyrir marga er föndrið snar þáttur í aðdraganda jóla, að koma saman, dunda sér, sötra kakó, gæða sér á piparkökum og hlýða á jólalög. Eins og gengur er afraksturinn mismikill en allir hafa ánægju af og þá mun tilganginum vera náð.

Föndrið var fyrsta verk nýrrar stjórnar en uppi eru hugmyndir um eitt og annað í starfi foreldrafélagsins og þær eru til alls fyrstar.

Meðfylgjandi eru myndir frá föndurdeginum í sal grunnskólans.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir