Ferðamál á dagskrá - klasasamstarf

10.12 2010 - Föstudagur

Atvinnumálanefnd boðaði til fundar um ferðamál sl. miðvikudag þar sem klasahugtakið var sérstaklega til umræðu. Fyrir nokkrum vikum var B. Fanney Hauksdóttur og Helga Þorsteinssyni fengið það verkefni að taka saman stöðu ferðamála í sveitarfélaginu og lá sú vinna til grundvallar þegar að fundi kom.

Vopnfirðingar hafa setið eftir í ferðamálum, á því leikur ekki nokkur vafi að samstöðu hefur skort. Einstaka aðilar hafa í sveita síns andlits lagt sig fram um að koma sjálfum sér á framfæri sem og sveitarfélaginu en stefnumörkun hefur skort. Þáttur sveitarfélagsins í þessu samhengi er gríðarstór og hefur miklum fjármunum verið varið til kynningar á sveitarfélaginu þó alltaf megi gera betur, m. a. að velta upp hvort rödd þess heyrist á réttum stöðum.

Til fundarins, sem haldinn var í Kaupvangskaffi og sérlega vel kynntur gegnum flygildi í hvert hús sveitarfélagsins, var boðað undir tilsögninni Margar hendur vinna létt verk - kynningarfundur um ávinning klasasamstarfs ferðaþjónustuaðila. Klasi er annað orð yfir samstarf og hefur mikil áhersla verið lögð á hugtakið innan stofnanageirans, lagt hefur verið að aðilum að taka höndum saman þegar styrkja skal leitað enda löngum vitað að sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Mikilvægur þáttur í klasahugtakinu er að samkeppnisaðilar finna sér samstarfsvettvang.

Björn Halldórsson opnaði fund með stuttum inngangi en bauð síðan Fanney í pontu. Gerði hún grein fyrir hvað felst í hugtakinu klasi, hvernig hann virkar og hver ávinningurinn er af samstarfi ferðaþjónustunnar. Þó í sjálfu sér væri ekki verið að kynna nýjan sannleik sagði Fanney nákvæmlega það sem þarf að segja, nákvæmlega það sem vopnfirðingar þurfa að gera og bindur sá sem þetta skrifar, sem ferðamálafulltrúi sveitarfélagsins, miklar vonir við að fundurinn marki upphaf heilladrjúgs samstarfs innan ferðaþjónustugeirans á Vopnafirði.

Við tók Hrund Snorradóttir er greindi frá því mikla starfi sem unnið væri í menningar- og fræðasetrinu Kaupvangi, kom það sjálfsagt einhverjum á óvart hversu starfið er blómlegt. Annars lagði Hrund meginþungann á Vesturfarann, hún í góðu samstarfi við Cathy Josephson, vinnur að móttöku stórs hóps að vestan á næsta sumri en sá mun dvelja hér í 4-5 daga. Mikilvægt er að fá ferðamanninn til að staldra við, sá eyðir margfalt meira en þeir sem hafa stutta viðkomu á tilteknum stað.

Að lokum var komið að þeim félögum, Helga Þorsteinssyni og Ólafi B. Valgeirssyni, er fóru nánar í gegnum klasasamstarfið og nefndu fyrirlesturinn Héraðsklasi. Líkt og í fyrirlestri Fanneyjar var áherslan á samstarf aðila innan geirans - lykilorðið er samvinna

Þessi fundur markar fyrirtaks upphaf á langri leið en þegar í næstu viku verður boðað til fundar að nýju, stofnfundar um ferðamálaklasa Vopnafjarðar og í atvinnumálanefnd verður þessi mikilvægi málaflokkur fyrirferðamikill - þáttur sveitarfélagsins í ferðamálum er sem fyrr segir afgerandi. Að framsöguerindum loknum fór fram mikil og góð umræða, framundan er mikið verk að vinna en með samhentu átaki mun Vopnafirði farnast vel.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir