Danssýning í Miklagarði

10.12 2010 - Föstudagur

Miðvikudagskvöldið sl. var boðið til danssýningar í félagsheimilinu en undanfarnar vikur hefur Arlette Moreno kennt stórum hópi ungmenna danslistina. Komið var að sýningu þeirra, var hópnum tvískipt og sýndu fjölmörgum áhorfendum að þau hafa lært ýmislegt á þeim tíma sem Arlette hefur leiðbeint þeim.

Vert er að lofa framtak Arlette, sem fann hvötina hjá sjálfri sér að kom vopnfirskum krökkum í tengsl við danslistina en eins og allir vita er fátt ef nokkuð skemmtilegra en að dansa. Meðfylgjandi eru myndir frá sýningunni og ber að taka viljann fram yfir verkið því ekki eru allar myndirnar góðar!

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir