Skólafréttir

10.12 2010 - Föstudagur

Heimildarmaður hefur móttekið fréttabréf Vopnafjarðarskóla og mátti til með að koma því á framfæri á heimasíðu sveitarfélagsins en að öðru leyti er vísað á heimasíðu skólans, www.vopnaskoli.is

Jóladagskrá skólans

 

Á aðventunni hefur nám og kennsla að mestu verið með hefðbundnum hætti en jólin tengjast meira námi yngri nemenda. Gluggar gamla skólans voru skreyttir í fyrstu viku mánaðarins, stofur skreyttar í annari viku, nemendur fara í heimsókn í kirkjuna og sungnir eru jólasöngvar í söngstundum á föstudögum.

 

·        Miðvikudaginn 15. des. verður jólaföndur og jólakortagerð Boðið verður upp á kakó og mega nemendur koma með smákökur í nesti. Skóla lýkur kl. 13:10, heimakstur strax á eftir en gæsla með óbreyttu sniði.

 

·        Fimmtudaginn 16. des.. er haldið  áfram í föndri og kortagerð og nemendur æfa skemmtiatriði fyrir Litlu jólin. Í hádeginu verður ,,jólamáltíð“ þar sem starfsfólk þjónar til borðs og spiluð verða jólalög. Engin gæsla er þennan dag, skóli er til 13:10 og  heimakstur strax á eftir. 

 

 

  Litlu jólin eru föstudaginn 17. desember frá kl. 9:00-12:00

·        Á litlu jólunum skiptast nemendur á pökkum og er ætlast til að hver nemandi komi með pakka að verðmæti 300-500 kr. og skili til umsjónarkennara daginn áður. Mælst er til að ekki verði sælgæti í pökkunum.

·        Hátíðleg stofujól eru með umsjónarkennara þar sem lesið er jólaguðspjallið og jólasaga. Krakkarnir opna pakkana, er gefið sælgæti og skoða jólakortin.

·        Eftir stofujólin er dagskrá þar sem allir bekkir verða með atriði, dansað kringum jólatré og jólasveinar koma í heimsókn.

·        Nemendur úr sveitinni eru að sjálfsögðu keyrðir á og af litlu jólunum.

 

Valdir hafa verið nýir fulltrúar foreldra í Skólaráð.

Sæti í skólaráði eiga auk skólastjóra: Sandra Konráðsdóttir og Ragnar Antonsson, fulltrúar foreldra, Erla Sveinsdóttir, fulltrúi grenndarsamfélagsins, Birna Halldóra Einarsdóttir, fulltrúi starfsfólks, Ása Sigurðardóttir og Elín Dögg Methúsalemsdóttir fulltrúar kennara.

 

Námsmatsdagar verða 17.-21. janúar. Íþróttadagur í skólanum  verður 26. janúar þar sem nemendur og starfsfólk keppa í ýmsum íþróttagreinum.

 

Skóli  hefst aftur þriðjudaginn 4. janúar kl. 9:00.

 

Gleðileg jól

 

Starfsfólk skólans





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir