Sl. fimmtudag stóð tónlistarskólinn fyrir tónleikum þar sem nemendur komu fram og sýndu hvað í þeim býr - allt undir stjórn Stephen Yates, er fórst verkið vel úr hendi. Mæting í sal skólans var með ágætum og undirtektir góðar enda lögðu nemendur sig fram við flutning sinn.
Heimildarmaður gaf sér tóm til að hlýða á hljóðfæraflutninginn og hafði ánægju af. Myndir voru teknar, sumar ágætar, aðrar verri og sumar beinlínis vondar en allar fljóta þær með gestum síðunnar til upplýsingar.