Morgunroði

12.12 2010 - Sunnudagur

Boðið er uppá einstaka veðurblíðu í dag, 3ja sunnudag í aðventu, bjart veður og stillt - og í hitanum sl. daga hefur allur snjór horfið. Enn eru 12 dagar til jólahátíðar svo ekki er öll von úti um að hér verði hvít jól en þó það skipti ekki höfuðmáli hafa hvít jól sjarma umfram rauð - þó ekki væri annað en fyrir þær sakir að myrkrið er ekki jafn dimmt.

Annars eru jólin svo stutt að þessu sinni að hugmynd ráðamanna í meistaraverki bræðranna, Jóns Múla og Jónasar, Deleríum Búbónis, að fresta jólunum kemur í hugann. Er hún alltént framlögð hér með og lagt í hendur ráðamanna að taka ákvörðun hér að lútandi!

Fáeinar myndir teknar af pallinum við Lónabraut 19 fylgja með.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir