Unnið að fjárhagsáætlun Vopnafjarðar

14.12 2010 - Þriðjudagur

Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps vinnur þessar vikurnar að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2011, fyrri umræða fór fram 02. desember sl. og má lesa í fundargerð hreppsnefndar hér á síðunni.

Við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar, í drögum að fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps, A- og B-hluta, fyrir árið 2011, er gert ráð fyrir 30.8 milljón króna hagnaði. Í bókun hreppsnefndar stendur:

Í sjóðstreymi kemur í ljós að þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta, verðbóta, söluhagnaðar og annarra reiknaðra stærða að veltufé frá rekstri verður 91,0 m. kr. Áætlunin gerir ráð fyrir nettófjárhæð í fjárfestingar að upphæð 41,2 m.kr. Við það er þó miðað að ekki verði farið í stórfelldar fjárfestinga á árinu nem mögulegt verði að selja eignir á árinu á móti og/eða fá styrki til framkvæmdanna eða mögulegt verði að finna frekari glufu í rekstrinum heldur en fram kemur hér í dag.

 

Afborganir lána eru áætlaðar 96,6 m.kr. Til þess að brúa allar afborganir og fjárfestingar eins og þær eru settar hér fram í dag þarf að taka lán að fjárhæð 47,5 m.kr. Í raun þyrfti verkefni sveitarstjórnar og forstöðumanna deilda að felast í því að finna fjárhæð sem dygði til þess að ekki væri þörf fyrir nýjar lántökur. Eins og fyrr segir er leiðin í þeim efnum að finna smugur í rekstri sveitarfélagsins tekju -og gjaldamegin, selja eignir eða fá styrki af einhverjum toga til framkvæmdanna. Að öllu þessu töldu er ráðgert að handbært fé hækki um 0,6 m.kr. og verði 1,0 m.kr. í árslok, náist að gera allt það sem áætlað er að gera samkvæmt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun A -og B- hluta sjóða fyrir árið 2011.

 

Á sama fundi hreppsnefndar var útsvarshlutfallið samþykkt samhljóða:

 

„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði  13,28 %  eins og var á árinu 2010.  Nái nauðsynlegar lagabreytingar fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.“

 

Að öllu ofansögðu er ljóst að áfram þarf að sýna aðhald í rekstri sveitarfélagsins, velta hverri krónu a. m.k. 2var en mörg sveitarfélög á Íslandi standa frammi fyrir miklum rekstrarvanda og vandséð hvernig tekið verður á honum hjá þeim sumum.

 

Nánar verður fjallað um fjármál sveitarfélaga og þær nýju reglur sem samráðsnefnd um efnahagsmál setur fram í skýrslu er hún sendi frá sér fyrir skömmu, skýrslu undir heitinu "Fjármálareglur fyrir sveitarfélög og samráð um efnahagsmál".





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir