Atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps átti fund með framkvæmdastjóra Þróunarfélags Austurlands, Hafliða H. Hafliðasyni, í gær. Var fundurinn haldinn að frumkvæði Hafliða, sem óskaði eftir að fá að kynna stoðstofnunina fyrir nefndarfólki.
Þróunarfélag Austurlands er ein þessara s. k. stoðstofnana í samfélaginu sem almenningur veltir lítið fyrir sér dags daglega hvers tilgangur er. Í hugum flestra er embættiskerfið svo flókið að engan veginn sé hægt að henda reiðu á hvers er hvað og svo lengi sem samfélagið virkar - svona nokkurn veginn - er ekki ástæða til frekari íhugana. Fyrir nefndarfólk í atvinnumálum sveitarfélaga horfir öðru vísi við og því var framkvæmdastjóra Þróunarfélags Austurlands, ÞFA, vel tekið er hann sótti Vopnafjörð heim í gær. Kynnti Hafliði starfsemi ÞFA og skyldra stofnana og í framhaldinu fór fram lífleg umræða um stofnanakerfið, atvinnumál í héraði og í fjórðungnum.
Í stuttu máli er ÞFA:
„Þróunarfélagið starfar á breiðum grunni að framþróun í atvinnulífi og jákvæðri samfélagsþróun á Austurlandi“. Kjörorð þess er AUSTUR og stendur fyrir Atvinnuþróun – Uppbygging – Skilvirkni – Tækifæri – Upplýsingagjöf – Rannsóknir.
Starfssvæðið teygir sig frá Vopnafirði í norðri suður fyrr Djúpavog – var þar til á þessu ári t. o. m. Hornafjörður. Starfsstöð á Reyðarfirði þar sem Ásta Kristín er með aðstöðu en að öðru leyti er aðstaða ÞFA í Miðvangi á Egilsstöðum. Flest voru þau 7 á launaskrá en mikil hreyfing hefur verið á starfsmönnum félagsins undanfarin misseri. Hafliði, Enok og Ingigerður eru starfsmenn ÞFA ásamt Ástu Kristínu, sem hóf störf nýverið og um áramót bætist við Ólafur Áki, fyrrum sveitarstjóri á Djúpavogi og í sveitarfélaginu Ölfus.
Velta ÞFA er um 55 milljónir/ár og skiptast tekjur svo: 25 mkr. frá Byggðastofnun, félagsgjöld sveitarfélaga 3.5 mkr., atvinnuþróunarsjóður 5.5 mkr. og sértekjur um 40% tekna. Til VAXA fara 20 mkr./ár frá ríkinu. Stjórn ÞFA skipa fulltrúar atvinnulífs og sveitarfélaga en um 60 aðilar eru virkir félagar í ÞFA.
Að öðru leyti er vísað í fundargerð atvinnumálanefndar sem má finna hér á heimasíðu sveitarfélagsins.