Yfir landið gengur mikill veðurofsi, líklega er veðrið hvað verst á Norður- og Austurlandi og minnir suma óneitanlega á gamla tíma norður á Akureyri. Sjálfsagt er hægt að segja sambærilegar sögur héðan en svona veður koma æ sjaldnar og eðlilegt að fólki bregði þegar lognið fer jafn hratt yfir og í dag.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun ítrekað sem og Vegagerðin, í dag er ekkert ferðaveður um stóran hluta landsins - einkum og áðurnefnda landshluta, Norður- og Austurland. Án alls efa eru þeir mýmargir sem hugðust leggja land undir fót viku fyrir hátíð ljóss og friðar en skynsemin hlýtur að ráða og þeir hinir sömu sitja heima og hugsa sitt ráð. Skv. Veðurstofunni mun veður ganga niður þegar á daginn líður en t. a. m. á miðvikudag er því spáð að frostið fari niður fyrir 20 gráður, á Austurlandi í allt að -25°C og þá er betra að vera með ofnakerfið virkt og olíufíringuna á sé þörf á að bæta í!
Leikskólanum Brekkubæ var lokað um hádegisbil og foreldrar sóttu börnin sín, spáð er að veðrið versni áður en það gengur niður svo ráðstöfunin var skynsamleg. Grunnskólinn er nú kominn í jólafrí en í morgun héldu nemendur og starfsmenn sín litlu-jól og má gera ráð fyrir að ekki hafi það verið tekið út með sældinni fyrir jólasveinana að koma sér á staðinn eins og ofsinn er í byggð - hvað þá á fjöllum uppi. Má reikna með að blessaðir sveinarnir verði að þiggja gistingu hjá einhverju góðu fólki, ekki viljum við að þessir vinir okkar fari sér á voða að óþörfu.