Vopnfirðingur lýkur leiklistarnámi

18.12 2010 - Laugardagur

Í dag, laugardaginn 18. desember, fór fram útskrift nemenda við Kvikmyndaskóla Íslands. Meðal útskriftarnema er vopnfirðingurinn Ásgrímur Guðnason. Ási, eins og hann kallast af velflestum, skrifaði kvikmyndahandrit og gerði kvikmynd - sem kalla má stuttmynd - sem hann frumsýndi kl. 18 í gær í Bíó Parasís innan um 11 aðrar.

Mikið var um dýrðir og veitt verðlaun fyrir bestu mynd á hverju sviði fyrir sig og af þeim fjórum verður einn valinn sem hlýtur Bjarkann.

Ásgrímur er einn þessara sem kalla má fæddur leikarin og hyggur á feril sem slíkur en nemendur Kvikmyndaskóla Íslands njóta þeirra forréttinda að fá að takast á við alls kyns viðfangsefni í námi sínu, öðlast víðtæka þekkingu á sviðinu. Um Kvikmyndaskólann segir á heimasíðu hans:

Við viljum hjálpa þér að  koma hugmyndum í framkvæmd. Sem nemandi í Kvikmyndaskóla Íslands færðu tækifæri til að gera þínar eigin kvikmyndir í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Þér býðst fjölbreytt nám í fjórum deildum og geta þar með allir fundið sitt áhugasvið innan fagsins. En enginn er bundinn við eina grein. Þú getur lært leiklist en endað sem framleiðandi, orðið afbragðs handritshöfundur en ákveðið að leggja fyrir þig kvikmyndatöku. 

Kvikmyndaskóli Íslands sameinar þekkingu starfandi kvikmyndagerðarmanna, leikara og skálda, framleiðslufyrirtækja og sjónvarpsstöðva. Þú lærir að framleiða myndefni sem stenst alþjóðlegar gæðakröfur og á hverri önn eru um 90 myndir framleiddar við skólann. Mikið er lagt upp úr því að nemendur kynnist öllum hliðum iðnaðarins. Hér eru framleidd verkefni sem sýnd hafa verið í sjónvarpi, í kvikmyndahúsum og á kvikmyndahátíðum víðsvegar um heim. 

Kvikmyndaskóli Íslands starfar með viðurkenningu menntamálaráðuneytisins og samkvæmt lögum og aðalnámskrá  framhaldsskóla. Rík áhersla er lögð á gæðamat og sérstök fagráð, skipuð fulltrúum hagsmunaaðila, sjá um eftirlit og úttektir á starfsemi skólans. Eftir hvern áfanga færðu sömuleiðis tækifæri til þess að viðra viðhorf þitt hvað kennsluna varðar og áfangann sjálfan. Skólinn er í stöðugri sjálfsskoðun til þess að tryggja þér fyrsta flokks menntun og vinnuumhverfi.

Það er ekki laust að við finnum til stolts yfir hinum unga syni staðarins og fær Ásgrímur heillaóskir frá sveitarfélaginu með von um að framtíðin beri í skauti sér ótal margar ánægjustundir. Til hamingju með daginn!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir