Fjárhagsáætlun Vopnafjarðar afgreidd

21.12 2010 - Þriðjudagur

Fjárhagsáætlun Vopnafjarðar var samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 16. desember sl. með 5 atkvæðum meirihlutans. Milli umræðna fóru fram vinnufundir með þátttöku meiri- og minnihluta.

Við síðari umræðu áætlunarinnar var lögð fram greinargerð sveitarstjóra við fjárhagsáætlun A- og B-hluta Vopnafjaðarhrepps dags. 16. des. 2010. Jafnframt lagðar fram breytingartillögur við fyrirliggjandi frumvarp að fjárhagsáætlun, sem unnar hafa verið af sveitarstjóra í samvinnu við forstöðumenn deilda og stofnana og sveitarstjórn.   Ennfremur lagður fram rekstrarreikningur, rekstraryfirlit, sjóðstreymi ásamt efnahagsreikningi að teknu tilliti til framlagðra breytingartillagna.

Í greinargerð með fjárhagsáætluninni segir m.a.:

„Í  rekstraryfirliti sveitarsjóðs í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun kemur fram, að heildartekjur aðalsjóðs eru 470,3  m.kr. samanborið við 433,4 m.kr. í fjárhagsáætlun 2010 og heildargjöld 422,9  m. kr. samanborið við 401,1 m.kr. 2010.   Megin skýring þess að tekjur og gjöld hækka svona milli ára er að hér er áætlað bæði tekju og gjalda megin fyrir yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.   Sú fjárhæð er 18,4 m.kr. tekna og gjalda megin.   Þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnstekna aðalsjóðs  að fjárhæð 21,6 m.kr. kemur í ljós að rekstrarniðurstaða aðalsjóðs er jákvæð um 69,1 m.kr.   Hér er í raun verið að áætla fyrir rekstrarkostnaði og rekstrartekjum af reglulegri starfsemi og nokkrum söluhagnaði vegna  seldra eigna.   Laun eru alls áætluð 222,2  m. kr.  samanborið við 216,0  m.kr. 2010 og almenn rekstrargjöld 200,8 m. kr. samanborið við 176,3  m.kr. 2010.  Sérstaklega er hér áætlað fyrir 18,4  m. kr. vegna yfirfærslu málefna fatlaðra og sama tala tekna megin eins og fram hefur komið.  Rekstrargjöld hækka því í raun í 182,3 samanborið við 176,3 m. kr."

Reiknað er með að hagnaður A-hluta sjóða í heild eftir afskriftir og að teknu tilliti til innri viðskipta 40,7 m. kr. og A- og B-hluti verði reknir með 63.5 milljón króna hagnaði árið 2011.

Að öðru leyti er vísað til fundargerðar hreppsnefndar, dags. 16. desember sl. hér á síðunni.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir