Heimildarmaður gaf sér tíma að rölta um myndavélina enda viðraði loksins til útiveru þó kvikasilfrið lafi vel undir -10°C en ólíkt undanförnum dögum er veður stillt í dag - og bjart eins og það verður á þessum árstíma.
Ljóst er að jólin í ár munu verða hvít, því fagna líklega flestir enda munar miklu um endurkast hvítrar mjallarinnar þegar dagurinn er skemmstur. Vetrarsólstöður voru í gær og daginn fer að lengja um hænufet héðan af uns birtan nær hámarki 21. júní að daginn fer að stytta á ný. Og svona rúllar tíminn áfram, stundum hægt, stundum hratt að manni finnst en alltaf í sama takti þó, burt séð frá öllu.
Framundan er hátíð ljóss og friðar, hátíðin er stutt að þessu sinni, alltaf er hún í raun jafn löng þó en öðru hverju bregður svo við að frídagar bjóðast fyrir eða eftir hina eiginlegu hátíð og þegar þannig er sólarhringnum snúið við í eins konar tómarúmi tímans.