Þorláksmessa = Skötuveisla

23.12 2010 - Fimmtudagur

Í hugum mýmargra Íslendinga eru engin jól án skötuveislu í aðdraganda þeirra og þá á Þorláksmessu. Vopnfirðingar eru ekkert öðru vísi hvað þetta varðar en aðrir landar vorir og hefur Hótel Tangi lagt sig fram um að mæta þörfum skötuelskenda með veislu í hádegi á degi heilags Þorláks.

Um skötuna er skrifað:

Sá siður að borða kæsta skötu á Þorláksmessu er ættaður af vesturlandi en hefur á síðari árum breyðst út um allt land.

Algengasta skötutegundin til þessa brúks er Tindabikkja, en hún er botnfiskur sem lifir á 20-1000 metra dýpi, hún hefur styttri hala en aðrar skötutegundir og hefur auk þess gadda sem hún dregur nafn sitt af. Aðeins eru notuð börð skötunar.

Skatan er soðin í söltu vatni og borin fram með kartöflum og floti eða smjöri. En hreinsa þarf roð og brjósk af börðunum eftir suðu.

Vitað er um skötuveislur víða um bæinn, bæði í hádeginu og í kvöld, og fyrir þann sem skötuna líkar er dagurinn einkar ánægjulegur og víst er að hann er ólíkur öllum hinum þegar skatan er ekki á boðstólnum. Að lokum er ekki annað eftir en að segja verði ykkur að góðu, megi bragðið og lyktin duga ykkur fram að næsta Þorlák!

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir