Vonandi að allir hafi notið þess besta sem jólahátíðin hefur uppá að bjóða, aflsöppun í faðmi fjölskyldunnar, góðs matar og ósvikna gleði yfir afrakstri gærdagsins. Jóladagur rann upp ægifagur og var svo fram eftir degi, var eins og jóladagur á að vera, með hvíta mjöll, heiðríkju og stillt veður.
Heimildarmaður síðunnar naut útiverunnar í dag og birtir hér nokkrar af þeim myndum sem hann tók á göngu sinni ofan þéttbýlis, veðrið var yndislegt eins og myndirnar bera með sér.