Annan dag jóla gjörbreytt veður

26.12 2010 - Sunnudagur

Jólahátíð fögnum við óháð veðri, sem betur fer bauðst a. m. k. Norðlendingum og Austfirðingum hvít jól, sem í hugum flestra er draumaaðstæður. Veðrið á og við Ísland er hvikult og eftir hreint yndislegan jóladag, fram eftir degi, tóku sunnanvindur að blása og fór ekki hægt yfir.

Við förum ekki varhluta af hamskiptum sem þessum, allt breytir um svip og aðstæður til aksturs t. a. m. umbyltast. Í stuttu máli eru aðstæður á vegum á Austurlandi í dag stórvarasamar komist fólk á annað borð um þjóðvegi fjórðungsins. Hver sá sem hyggst leggja í langför skyldi íhuga mál sitt vel því þegar saman fer fljúgandi hálka og hvass vindur ræður bílstjóri ekki endilega för - og þá er miklu betra heimasetið en af stað farið.

Hvað segir ekki í frægustu draugasögu Íslendinga, Djáknanum á Myrká:

... Einhverju sinni bar svo til litlu fyrir jól, að djákninn fór til Bægisár til að bjóða Guðrúnu til jólagleði að Myrká og hét henni að vitja hennar í ákveðinn tíma og fylgja henni til gleðinnar aðfangadagskvöld jóla. Dagana áður en djákninn fór að bjóða Guðrúnu, hafði gjört snjóa mikla og ísalög; en þann sama dag sem hann reið til Bægisár, kom asahláka og leysing, og þegar á leið daginn, varð áin ófær fyrir jakaferðum og vatnagangi, á meðan djákninn tafði á Bægisá ...

Þó aðstæður séu aðrar með nútíma tækni er aldrei of varlega farið, það þekkir sá sem þetta ritar af eigin raun en einmitt við þæra aðstæður sem nú bjóðast fauk bíll hans útaf í Víðidal með fullan bíl af fólki og vörum 16. desember 2007; þyngd bílsins var engin hindrun fyrir sunnanrokið hafandi rennblautan ísilagaðan þjóðveginn undir hjólum.

Fáeinar myndir af aðstæðum á og við Lónabraut 19.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir