Samviskusamir áhaldahússmenn unnu iðjusamir vinnu sína við hreinsun Selárdalslaugar í morgun líkt og þeir gera viku hverja - nema vera kynni oftar. Ekkert fer framhjá okkar mönnum og í tiltekt morgunsins ráku þeir haukfránum augum í torkennilegan hlut í öðrum búningsklefa sundlaugarinnar, sbr. meðfylgjandi myndir.
Hefur hinn torkennilegi aðskotahlutur verið rannsakaður af þekkingaraðilum innan sveitar og utan; er það samdóma álit hinna hreinlyndu sérfræðinga að um sé að ræða óvenju stóran eyrnatappa, svo stóran að útilokað sé að nokkur mannleg vera geti komið slíkum í eyra sitt - með eða án hjálpar. Líkt og aðrir staðir langt frá alfaraleið geymir Selárdalslaug ugglaust sín leyndarmál og a. m. k. einn hinna hauklyndu fræðinga telur alls ekki útilokað að geimvera kunni að hafa átt hjá viðkomu - hún þá óvenju eyrnastór en miðað við ástand eyrnatappans hafi hún aldrei notað þennan.
Hvað sem öllu líður verður tappanum komið í hendur alvitra á sviði geimrannsókna, þá er ekki að finna innan héraðs þó vissulega megi finna fólk sem er í allgóðum tengslum við það sem við dags daglega köllum yfirskilvitlega hluti. Má alltént vænta frekari (furðu-)fregna af eyrnatappa þessum en lesendum er látið eftir að spá frekar í hann með því að rýna í meðfylgjandi myndir.