Nú árið er liðið ... gleðilegt nýtt ár!

31.12 2010 - Föstudagur

Þegar þetta er ritað eru einungis fáeinar klukkustundir eftir af árinu 2010, af því er liðið 364 dagar og 10 klst., svona hér um bil. Árið fer á spjöld sögunnar sem mikið átakaár því hvað geta þær jarðhræringar sem skóku landið sunnanlands kallast annað en átök - og þau af stærri gerðinni.

Órói innan þings hélt áfram, Icesave-deilan óleyst, upplausn á atvinnumarkaði og sérstakur enn að kafa ofan í hin ýmsu mál án þess að nokkuð hafi verið upplýst um gang þeirra. Nær okkur litið gera vopnfirðingar árið upp nokkuð sáttir, atvinnulífið hefur staðið betur en víða, menningin sem fyrr áberandi sem og íþróttalífið með þátttöku meistaraflokks Einherja á Íslandsmótinu en áfram fækkar íbúum sveitarfélagsins svo færri standa undir rekstri þess.

Árið 1886 samdi séra Valdimar Briem Nú árið er liðið í aldanna skaut og mun fara vel á að enda síðasta fréttapistil ársins á ljóði skáldsins um leið og Vopnafjarðarhreppur sendir íbúum sveitarfélagsins og landsmönnum öllum hugheilar áramótakveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða.

 

Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.
 
En hvers er að minnast og hvað er það þá,
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.
 
Hún birtist á vori sem vermandi sól,
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
sem skínandi himinn og gleðirík jól
í vetrarins helkuldahríðum.
 
Hún birtist og reynist sem blessunarlind
á blíðunnar sólfagra degi,
hún birtist sem lækning við böli og synd,
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
er lýsir oss lífsins á vegi.
 
Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir,
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.
 
Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir,
gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir