Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Meðal þeirra sem sæmdir voru er Ágústa Þorkelsdóttir, kennd við Refsstað, fyrir störf í þágu dreifbýlis og heimabyggðar. Fær Ágústa sendar innilegar hamingjuóskir með verðskuldaða viðurkenninguna frá Vopnafjarðarhreppi.
Frekar verður um málið fjallað hér á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps innan skamms.

Ágústa ásamt Þórunni og Ásu við útskrift Fjölvirkjahópsins í júní sl.