Íbúum Austurlands fækkar á milli ára

04.01 2011 - Þriðjudagur

Eftir uppgangstímabil stóriðjuframkvæmda hefur íbúum Austurlands fækkað. Hefur í raun engu breytt þó atvinnuleysi hafi mælst lítið í fjórðungnum og minna en í velflestum öðrum í landinu. Nú berast tölur um aukið atvinnuleysi á Austurlandi, raunar stóraukið og á helst meðal iðnaðarmanna eða um heil 20%. Hlutfall atvinnulausra er engu að síður lægra en gengur og gerist í landinu.

 

Ef samanburður er gerður á milli ára, sbr. Hagstofu Íslands, er fækkunin lítilsháttar eða 1.2%. Á hinn bóginn boðar íbúafækkun stöðnun og ekki framþróun og ber að taka alvarlega. Hvað er það sem veldur? Á Vopnafirði hefur atvinnustigið verið tiltölulega gott, þegar vertíð stendur sem hæst er kallað eftir vinnandi höndum út fyrir byggðarlagið án þess að það skili sér í tilflutningi fólks. Dreifbýlið þykir augljóslega ekki spennandi kostur og margur kýs fremur að mæla göturnar heima fyrir án atvinnu en að leita á vit nýrra ævintýra og reyna búsetu á litlum fögrum stað eins og Vopnafirði.

 

Nú er þetta ekki algilt því auðvitað er fólk að þreifa fyrir sér og þeir sem á annað borð hafa þor sjá yfirleitt ekki eftir því að reyna búsetu á litlum stað hafandi atvinnu og möguleika til bættra lífskjara. Framundan er frekari uppbygging við álver Fjarðaáls og Seyðfirðingar horfa til uppbyggingar kapalverksmiðju sem skapar a. m. k. 30 stöðugildi auk afleiddra starfa. Áfram er horft til frekari vinnslu uppsjávarfisks á Vopnafirði og sjálfsagt er það á fárra vitorði hvað möguleg vinnsla á Drekasvæðinu kann að hafa á íbúa-og efnahagsþróun á Austurlandi.

 

Að neðan má sjá íbúatölur einstakra sveitarfélaga, breytingu á milli ára en af 9 sveitarfélögum fjölgar í 3 - Hornafjörður er talinn til Austurlands í tölum Hagstofunnar. Athygli vekur sá mikli munur sem er á milli kynja en Austurland sker sig úr meðal annarra þar sem karlmenn eru mun fleiri en konur. Suðurland býr við samskonar skekkju en þar eru íbúar 1/2 fleiri og hlutföllin þar af leiðandi önnur.

 

Íbúatölur:

 

2010

Breyting frá 2009

Alls

Karlar

Konur

Alls

Karlar

Konur

 

12.306

6.513

5.793

-1,2%

-1,3%

-1,0%

2009

2010

 

Seyðisfjörður

717

669

Fjarðabyggð

4637

4573

Vopnafjarðarhreppur

682

670

Fljótsdalshreppur

89

79

Borgarfjarðarhreppur

135

140

Djúpavogshreppur

439

448

Fljótsdalshérað

3465

3406

Sveitarfélagið Hornafjörður

2089

2116

Breiðdalshreppur

209

205

 

Samtals:

12462

12306





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir