Jól brátt á enda

05.01 2011 - Miðvikudagur

Á morgun er þrettándi dagur jóla, þau eiga sér upphaf og endi eins og velflest annað. Í hugum margra er sá tími kvíðavænlegur sem í hönd fer því með lokum hátíðar ljóss og friðar hverfa skreytingar og ljósin öll sem prýtt hafa hús og garða sl. vikur.

Þau eru annars merkileg þessi jól, teygja sig æ lengra í aðra áttina og ekki hina; löngu áður en hin eiginlegu jól ganga í garð eru hús skreytt með ljósum og skrauti ýmiskonar. Það segir okkur að fólk vill nýta sér tækifærið til að lýsa upp skammdegið og draga sem mest úr áhrifum þess en óvíða er að finna svæði á jarðarkringlunni sem búa við jafn dimma vetur og við Frónbúar. Enn um sinn bíða okkar langar nætur og skammir dagar þó sól hækki smám saman á lofti.

Í huga þess er þetta ritar lýkur hinni eiginlegu hátíð með nýársdegi, eftir þann dag er tilgangur skrauts fyrst og síðast til að lýsa drungann og milda áhrif hans. Akureyringar hafa verið duglegastir allra að kveðja jólin á þrettándanum með álfabrennu Þórsara en hér er hefðin tæplega til staðar þó undanfarin ár hafi verið stofnað til brennu á Búðaröxl. Veðurspá morgundagsins er vond, eiginlega afleit með hvassri norðanátt og ofankomu, svo útlit er fyrir að brennu verði slegið á frest uns annað tilefni gefst til slíkra athafna.

Nú er um að gera að setja stefnuna á þorrann, þrauka næstu vikur með það að markmiði að lyfta sér upp á fyrsta laugardegi í þorra með því að mæta á þorrablót vopnfirðinga - laugardaginn 22. janúar n. k. Þorrinn hefst annars á bóndadegi, sem stendur uppá föstudaginn 21. Meira um þorrann og þorrablótið síðar en takið endilega frá þetta kvöld því enginn - og þá meinum við enginn - má láta slíka skemmtan framhjá sér fara.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir