Í fersku minni er sú barátta og samstaða sem vopnfirðingar sýndu á liðnu hausti í kjölfar yfirlýsingar stjórnenda Heilbrigðsstofnunar Austurlands, þar sem sterklega var gefið í skyn að Sundabúð skyldi lokað þar eð tap væri á rekstri HSA. Samstaðan bar ávöxt og Sundabúð var bjargað.
Í dag greinir Morgunblaðið svo frá að samkomulag hefur verið gert um að Heilbrigðisstofnun Austurlands reki hjúkrunarheimilið Sundabúð á Vopnafirði í eitt ár og er stefnt að því að sveitarfélagið taki við rekstrinum um næstu áramót.
Í haust hafi talsverð umræða verið í fjölmiðlum um hugsanlega lokun Sundabúðar vegna niðurskurðar á framlögum til Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Einar Rafn Haraldsson, forstjóri stofnunarinnar, sagði að heilbrigðisráðuneytið hefði beint þeim tilmælum til Heilbrigðisstofnunarinnar að reka Sundabúð áfram með svipuðu sniði þetta ár, en hefja jafnframt viðræður við sveitarfélagið um að taka við rekstrinum eftir eitt ár.
Einar Rafn sagði að þessar viðræður væru hafnar en niðurstaða lægi ekki fyrir. Vopnafjörður rak Sundabúð fram til ársins 2000, en þá óskaði sveitarfélagið eftir að Heilbrigðisstofnun Austurlands tæki yfir reksturinn.
Einar Rafn sagði að Sundabúð væri í góðu húsnæði og þar ynni gott starfsfólk. Þetta væri hins vegar lítil rekstrareining sem þyrfti mikla mönnun og erfitt að láta daggjöld frá ríkinu standa undir rekstrinum. Ellefu eldri borgarar búa á Sundabúð.
Aðspurðu um mál þetta sagði sveitarstjóri, Þorsteinn Steinsson, að vissulega hafi málið komið til umræðu í tengslum við yfirlýsingar ráðamanna HSA um mögulega lokun Sundabúðar. Á hinn bóginn væru engar formlegar viðræður hafnar og með öllu ljóst að sveitarfélagið bæri ekki taprekstur fremur en HSA; finna þarf sanngjarnan flöt á málið og verður nýhafið ár notað til þessa eigi svo að fara að Vopnafjarðarhreppur taki við rekstri Sundabúðar á nýjan leik. Meira um málið síðar.