Jólin kvöddu með hvelli

07.01 2011 - Föstudagur

Þrettándinn bauð ekki uppá útivist né ferðaveður, jólin kvöddu með sannkölluðum hvelli. Veðurofsinn var raunar slíkur að einhvern tímann hefði verið talað um mannskaðaveður - t. a. m. blés viðstöðulaust yfir 35 m/sek. á Sandvíkurheiði um tíma og í hviðum vafalítið miklu meira. Um allt land réð ofsinn þó af mismiklum krafti, höfðu björgunarsveitarmenn víða í nógu að snúast og má spyrja sig hvar við hin værum nyti þessara hetja ekki við.

Um miðnætti tók veður að ganga niður hér í Vopnafirði og þegar sá sem þetta ritar fór á fætur í morgun um kl. 05.30 fór vindur mun hægar yfir og plús tók við af mínus á hitamælinum. Þessi dúr var þó einungis lognið á undan storminum því Veðurstofan varar við öðru áhlaupi í dag - og á heimasíðu stofunnar segir að mjög slæmt ferðaveður sé um mest allt land. Norðan stórhríð um norðanvert landið. Mjög hvassir vindstrengir sunnan fjalla á sunnanverðu landinu.

Sé litið á kort Vegagerðarinnar eru vegir á hálendi að mestu ófærir og þó þeir væru það ekki býðst ekki ferðaveður og rétt að fólk haldi sig í nærumhverfi sínu. Ófærðin þýðir að brátt þarf að koma til skömmtunar því gengið hefur mjög á vörubirgðir verslana, hillur eru teknar að tæmast og fara að minna á markaði í Zimbambwe svo gripið sé til öfganna! Alltént kemur illviðrið niður á öllum mannlegum athöfnum, þar með talið samgöngum um þjóðvegi eyjarinnar. Íslendingar búa við þau forréttindi að búa almennt í ágætis húsum, þykir sumum allt að því notalegt að heyra vindinn gnauða á gluggum húsa hafandi allt til alls nema vera kynni sama matarvalið og áður hafandi hillur sumar tómar í matvöruverslunum.

En sum sé jólin eru að baki, þau kvöddu með hvelli og minna okkur á hvar við erum staðsett á jarðarkringlunni. Nú er bara að byrja að telja niður fyrir næstu jól, 350 dagar ... 

Svo er rétt að minna fólk á að gera hvað það getur til að létta undir með áhaldahússmönnum, sem eiga verk að vinna við hreinsun gatna - koma bílum sínum af götum þar sem því verður við komið og sýna þeim tilhlýðilega virðingu við starfið.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir