Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS) mótmælir harðlega áformum um að fella niður endurgreiðslur virðisaukaskatts á húshitunarkostnaði, svo sem stefnt er að í frumvarpi. Kemur þetta fram í bókun sem gerð var á fundi stjórnarinnar 01. desember sl.
Verði frumvarpið á hinn bóginn samþykkt mun breytingin ein og sér leiða til hækkunar á húshitunarkostnaði á s. k. köldum svæðum, svo sem Vopnafirði. Stjórn SSKS leggur áherslu á að komi til þessarar hækkunar á húshitunarkostnaði verðir niðurgreiðslur auknar að sama skapi. Stjórnin bendir á að nú þegar er húshitunarkostnaður í dreifbýli og þéttbýli á landsbyggðinni tvö- til þrefaldur miðað við það sem kostnaðurinn er á hitaveitukynntum landssvæðum. Endurgreiðslur virðisaukaskatts á húshitunarkostnaði námu 218.8 milljónum króna á árinu 2008.
Á nefndum fundi stórnar SSKS var fyrirhuguð hækkun á raforkukostnaði rædd, sem koma átti á frá og með nýliðnum áramótum, hækkun um 8,3% á gjaldskrá Rarik 01. janúar 2011. Þessu er mótmælt harðlega enda munu hækkanir þessar vera langt umfram almennar verðlagshækkanir. Er iðnaðarráherra hvattur til að endurskoða tekjumörk þau sem opinberum dreifingarfyrirtækjum eru sett, sem munu þegar vera alltof há miðað við afkomutölur þessara fyrirtækja. Segir í bókun að „Fjárhæð niðurgreiðslna þyrfti að vera í dag um 1.500 milljónir króna á ári til þess að húshitunarkostnaður á köldum svæðum væri sambærilegur og hann var árið 2005“.
Ennfremur er iðnaðarráðherra hvattur til að endurskoða raforkulögin, sbr. XIII. ákvæði til bráðabirgða í raforkulögum nr. 65/2003. Bendir stjórnin sérstaklega á að ræða þarf að nýju þau samkeppnissjónarmið sem komu inn í lögin með breytingum sem samþykktar voru á Alþingi árið 2004. Tryggja þarf að allir íbúar landsins hafi sambærilegt aðgengi að orku og nefna í því sambandi átak í nettengingum sem fjarskiptasjóður stendur nú fyrir“.
Í stjórn SSKS sitja: Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsnesi, formaður; Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafjörður, og Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðarvíkurhreppi.
Meðfylgjandi er samanburðartafla.
| Húshitunarkostnaður/mán. |
|
|
|
|
|
|
|
| Selfoss/hitaveita |
|
|
7,307 |
| Egilsstaðir/hitaveita |
|
|
7,807 |
| Reykjavík/hitaveita |
|
|
8,656 |
| Akureyri/hitaveita |
|
|
9,468 |
| Vestmannaeyjar/fjarvarmaveita |
|
10,858 |
| Ísafjörður/fjarvarmaveita |
|
15,781 |
| OV (Orkuveita Vestfj.) þéttbýli/rafhitun |
18,364 |
| Rarik þéttbýli/rafhitun |
|
|
18,578 |
| Seyðisfjörður/Höfn/fjarvarmaveita |
|
19,431 |
| OV (Orkuveita Vestfj.) dreifbýli/rafhitun |
21,418 |
| Rarik dreifbýli/rafhitun |
|
22,055 |