Fimmtudagar til fróðleiks

12.01 2011 - Miðvikudagur

Þekkingarnet Austurlands, ÞNA, mun á næstu mánuðum standa fyrir erindaröð á hinum ýmsu stöðum á Austurlandi - í gegnum fjarfundarbúnað geta áhugasamir íbúar hvers samfélags fylgst með í heimabyggð. Byrjað verður á Vopnafirði á morgun, fimmtudaginn 13. janúar kl. 12:15, með erindi Cathy Ann Josephson um Vesturheim.

Það er ekki að tómum kofanum komið hjá Cathy þegar kemur að umfjöllun um Vesturheim, Vestu-Íslendingurinn sem flutti heim að nýju hefur eðlilega yfirburða þekkingu á málinu og verður fróðlegt að hlýða á erindi hennar, sem hefst sum sé kl. 12:15 í starfsstöð ÞNA í Kaupvangi. Meðfylgjandi mynd sýnir Cathy greina frá verkefni sínu við útskrift Fjölvirkja í júní á sl. ári.

Auglýsing ÞNA viðvíkjandi erindaröðina er svofelld:

Fimmtudagar til fróðleiks  –  Erindaröð Þekkingarnets Austurlands í fjarfundi  annan fimmtudag hvers mánaðar

 

Starfsstöðvar Þekkingarnets Austurlands eru  fimm og  sér hver starfsstöð um að útvega eitt fræðsluerindi  á vorönn 2011. Erindin vera send út í fjarfundi á öllum starfsstöðvum ÞNA  annan fimmtudag hvers mánaðar kl 12.15 -12.45. Allir velkomnir

 

Dagskrá:

 

13.  janúar. Erindi frá Vopnafirði.     

Vopnafjörður – Vesturheimur. Fyrirlesari  Cathy Ann Josephson.

 

10. febrúar. Erindi frá  Egilsstöðum.

Að vernda eða virkja menningararfinn?  Fyrirlesari  Ása Richardsdóttir 

  

10. mars. Erindi frá Neskaupstað.   

 Austurlandsakademían - draumur eða möguleiki?  Fyrirlesari  Guðrún Á.  Jónsdóttir

 

14. apríl. Erindi frá Reyðarfirði. 

H.C. Andersen og Jónas Hallgrímsson – Hvað er málið?  Fyrirlesari Halldóra Tómasdóttir     

         

12. maí. Erindi frá Höfn.    

Kynning á fyrirtækja- og starfsráðgjöf ÞNA. Fyrirlesari  Ragnhildur Jónsdóttir      

 

Fleiri námsver og fjarafundaver geta tengst ef þess er óskað.    

Svo er bara að skella sér í Kaupvang á morgun - og auglýsta fimmtudaga - og nýta sér það sem í boði er.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir