Þekkingarnet Austurlands (ÞNA) og Þrónunarfélag Austurlands (ÞFA) munu í næstu viku standa fyrir s. k. Evrópuviku. Á undanförnum árum hefur farið fram í þjóðfélaginu mikil umræða um hvort Ísland eigi að taka skrefið til fulls og sækjast eftir inngöngu í Evrópusambandið. Þó andstaðan virðist mikil - og hávær - hafa Íslendingar smám saman aðlagast regluverki Evrópu.
Framhjá því verður eigi litið að Evrópusinnum hefur gengið brösulega að koma landanum í skilning um kosti inngöngunnar en vitað er að sem hluti af hinu stóra sambandi verða Íslendingar að gefa eftir í vissum málum um leið og þeir fá ýmislegt í staðinn. Nefndar stoðstofnanir á Austurlandi, ÞNA og ÞFA, vilja með Evrópuvikunni koma til móts við báða aðila, upplýsa áhugafólk um þetta mikilvæga málefni, Evrópumál, en Ísland er Evrópuþjóð og hlýtur að leita leiða til að treysta böndin við nágrannaþjóðir sínar innan álfunnar.
Auglýsing stofnananna er svofelld:
Evrópuvika Þekkingarnets og Þróunarfélags Austurlands 17. – 20. janúar.
Hugmyndin með Evrópuvikunni er að bjóða Austfirðingum upp á fræðslu, umræður og ráðgjöf um Evrópumál og Evrópustyrki. Ólíkum hagsmunaðilum var boðin þátttaka, ekki náðist að skipuleggja málþing með Heimssýn, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, það verður haldið og auglýst síðar.
Mánudagur 17. Janúar kl. 17-19, ÞNA Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði. Fræðslufundur um „Samningaviðræður við Evrópusambandið, helstu málaflokkar, staða viðræðna og næstu skref“ kynning frá fulltrúa utanríkisráðuneytisins og umræður.
Miðvikudagurinn 19. janúar kl. 13 – 18. ÞNA Vonarlandi, Egilsstöðum. Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana (www.evropusamvinna.is). Kjörið tækifæri fyrir einstaklinga, skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar æskulýðsstarfs og atvinnulífs.
Dagskrá:
13:00 – 13:10 Evrópusamvinna.is
13:10 - 13:55 Menntaáætlun Evrópusambandsins
Comenius – leik-, grunn- og framhaldsskólar
Grundtvig – fullorðinsfræðsla
e-Tvinning – rafrænt skólasamstarf
Leonardo – starfsmenntun
13:55 – 14:25 Evrópa unga fólksins
Kaffihlé
15:00 – 15:30 Evrópumenning
15:30 – 16:00 7.rannsóknaáætlun ESB, Euraxess evrópska rannsóknastarfatorgið
16:00 – 16:30 NPP norðurslóðaáætlunin og NORA Norður Atlantshafsnefndin
16:30 – 18:00 Fulltúar áætlananna verða til staðar fyrir frekari upplýsingar og ráðgjöf.
Fimmtudagurinn 20. Janúar kl. 20-22, hjá ÞNA Vonarlandi Egilsstöðum. Málþing „Sterkara Íslands“ samtaka evrópusinna (www.sterkaraisland.is) um tækifæri sem felast í Evrópusamstarfi. Dagskrá
- Austurland í Evrópusambandinu - hvers má vænta? Anna Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður Brusselskrifstofu Sambands Sveitarfélaga.
- Rannveig Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Sagnabrunns, tækifæri í ESB fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni.
- Hafliði Hafliðason, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands, Er austfirsk þekking útflutningsvara?
- Evrópusamtök á Austurlandi, umræður.