Fróðlegt erindi Cathy

13.01 2011 - Fimmtudagur

Kom í hlut Cathy Ann Josephson að flytja fyrsta erindið í erindaröð ÞNA, sem haldin verða 2. fimmtudag  hvers mánaðar næstu mánuða. Tók hún fyrir Vesturfarann og vinnu sína í tengslum við hann, kom margt athyglisvert fram. Erindið flutti Cathy í Kaupvangi en auk vopnfirðinga voru á fyrirlestrinum gestir í sal á Neskaupstað og Egilsstöðum.

Cathy nýtur þeirrar merkilegu sérstöðu að vera Vestur-Íslendingur búsettur á Íslandi og hefur ættingjum okkar úr Vesturheimi þótt einkar áhirfaríkt, svo ekki sé fastar að orði kveðið, að sjá Cathy bregða sér í gervi formóður sinnar, sem flutti vestur um haf á 19. öld. Í erindi sínu kom Cathy víða við, m. a. að hingað er von á 3ja tug Vestur-Íslendinga í sumar sem dvelja munu í Vopnafirði um nokkurra daga skeið. Skráningarvinna hennar er tímafrek en nú þegar hefur Cathy skráð sem nemur 350 bls., einkum fólk er tengist Vopnafirði þó það sé ekki algilt en sjálf á hún ættir að rekja til Mývatnssveitar.

Að erindi loknu svaraði Cathy fyrirspurnum og fékk m. a. ósk um að hefja leit ættingja Guðrúnar hjá ÞNA á Neskaupstað og tók vel í þá málaleitan. Ljóst er að þó ekki hafi mikið á starfsemi Vesturfarans borið á sl. árum að starfið er nokkurt og fer vaxandi. Möguleikar til framþróunar eru gríðarmiklir en Cathy sagði milli 500 þúsund og 1 milljón íbúa Vesturheims tengja sig við Ísland og því eftir miklu að slægjast í nánustu og fjarlægri framtíð.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir